Evrópuráðstefna 2012

27. janúar 2012 | 11:55
|Evrópuráðstefna 2012

Evrópuráðstefna Klúbbhúsa 2012
Í heiminum öllum eru um 400 „Fountain House“ klúbbar starfandi og þar af yfir 80 í Evrópu – flestir á Norðurlöndunum. Annað hvert ár er haldin Evrópuráðstefna Klúbbhúsa og verður hún haldin á Grand Hótel í Reykjavík 28. apríl – 1. maí næst komandi. Í Klúbbnum

Evrópuráðstefna klúbbhúsa haldin í Reykjavík 28. apríl til 1. maí 2012

Í heiminum öllum eru um 400 „Fountain House“  klúbbar starfandi og þar af yfir 80 í Evrópu – flestir á Norðurlöndunum.  Annað hvert ár er haldin Evrópuráðstefna Klúbbhúsa og verður hún haldin á Grand Hótel í Reykjavík 28. apríl – 1. maí næst komandi.

Í Klúbbnum Geysi fer fram atvinnutengd endurhæfing fyrir fólk sem stríðir við geðraskanir. Í klúbbnum er unnið samkvæmt hugmyndafræði „Fountain House“, sem miðar að virkri þátttöku félaga í atvinnumiðuðum degi, þátttöku á eigin forsendum og jafnræði félaga og starfsfólks.

Staðfest hefur verið með rannsóknum hjá Massachusetts University að fólk sem sækir „Fountain House“ klúbbhús er mun líklegra til að komast í meiri virkni í samfélaginu – í formi vinnu og/eða náms.

Hugmyndafræðin er tæplega 70 ára gömul og hefur víða verið viðurkennd sem skilvirkt úrræði í geðendurhæfingu. Á Íslandi hefur klúbburinn starfað í 12 ár, félagar eru yfir 400 og rúmlega 30 manns mæta daglega til að nýta sér þessa vinnutengdu endurhæfingu í formi gagnlegra starfa við rekstur klúbbsins. Einu skilyrðin fyrir félagsaðild er saga um geðræn veikindi. Félagsaðild er ókeypis og mæting er á forsendum hvers og eins.

Um starfsemi klúbbhúsa í heiminum má lesa á www.iccd.org (International Center for Clubhouse Development).

Frekari fyrirspurnir má senda á conference@kgeysir.is

Með bestu kveðju, 

Klúbburinn Geysir








KlúbburinnGeysir
Skipholti 29/105 Reykjavik Sími: 5515166 Fax: 5515136 Veffang www.kgeysir.is