ICCD

Viltu leggja Geysi lið?

Eins og allar sjálfseignarstofnanir er Klúbburinn Geysir háður fjárframlögum úr ýmsum áttum. Farið er vel með alla fjármuni klúbbsins og öll meðferð þeirra, líkt og allrar starfsemi klúbbsins, er opin og gagnsæ.

Þú getur styrkt Klúbbinn Geysi með innlögn á reikning hans: 0101-26-010009, kt. 501097-2259.

Það er engin lágmarksinnlögn – margt smátt gerir eitt stórt!

Við þökkum kærlega fyrir allt sem til er lagt og minnum á að setja STYRKUR sem tilvísun.

Á síðunni er að finna fjölþættar upplýsingar um starfsemi klúbbsins, útgáfu, námskeið og félagslíf. Það er von okkar að hún verði ykkur hvatning til jákvæðara lífs. Markmið okkar er að brúa bilið milli stofnana og samfélagsins.



03. febrúar 2012 | 14:40
|Fréttir

Þorrablótið rokkar
Þorrablótið var í gær. Það heppnaðist þrælvel. Húsið opnaði kl. 18.00. Fólk tók að streyma inn um leið og húsið opnaði. Fólk sat og spjallaði undir lágværri tónllist. Klukkan 19.00 hófst borðhaldið. Kepptist hver á fætur öðrum að segja hvað hrútspungarnir voru góðir, eða hvað sviðasultan væri góð, hvað þá


01. febrúar 2012 | 14:23
|Fréttir

Þorrablót 2. febrúar
Hið árlega þorrablót klúbbsins verður haldið fimmtudaginn 2. febrúar. Hefðbundinn þorramatur verður á boðstólum ásamt fjöldasöng með undirleik Kela og kiðlinganna, ef þorraguðinn lofar, og Leiklistargengið ætlar að kitla hláturtaugarnar. Eins og félagar þekkja er þorrablót Geysis ein öflugasta skemmtun sem klúbburinn stendur fyrir. Rétt er að geta þess að


25. janúar 2012 | 13:35
|Fréttir

Opið hús fimmtudaginn 26. janúar
Fimmtudaginn 26. janúar verður opið hús frá kl. 16:00 - 20:00 í klúbbnum Geysi. Boðið verður upp á ítalskt pizzuþema. Tóm gleði og ánægja að ekta ítölskum sið. Félagar endilega skráið ykkur fyrir kl. 12:00 á morgun.


20. janúar 2012 | 11:00
|Fréttir

Opið Hús Laugardaginn 21. janúar
Laugardaginn 21. janúar verður opið hús í Geysi frá kl. 11.00-15.00. Við ætlum að elda saman indverska kjúklingasúpu og horfa á amerísku gamanmyndina Rat Race á eftir. Þeir sem ætla að vera í mat eru beðnir um að skrá sig í síma 551-5166. Hlökkum til að sjá ykkur!


11. janúar 2012 | 12:32
|Fréttir

Safnaferð - hið íslenska Reðasafn
Fimmtudaginn 12. janúar ætlum við að heimsækja hið íslenska Reðasafn, Laugarvegi 116. Lagt af stað frá Geysi kl. 16.00. Aðgangseyrir kr. 1.000 en kr. 800 fyrir hópa sem telja tíu eða fleiri. Nánari upplýsingar fást í síma 551 -5166.


05. janúar 2012 | 15:33
|Fréttir

Breytingar á starfsmannamálum.
Ýmsar breytingar hafa orðið á starfsmannamálum hjá Klúbbnum Geysi að undanförnu. Í október síðast liðinn tók Margrét Teitsdóttir til starfa í eldhúss- og viðhaldsdeild. Stefán Jónsson hefur látið af störfum í eldhúss-og viðhaldsdeild frá og með deginum í dag og Friðfinnur Finnbjörnsson verið ráðinn í hans stað. Elín Sigurðardóttir í

Á Döfinni
Félagsleg dagskrá í febrúar

Fimmtudagurinn 2. febrúar
Þorrablót
Húsið verður opnað kl.18.00
og borðhald hefst kl. 19.00

Fimmtudagurinn 9. febrúar
Bíóferð kl. 18.00
Umsjón: Benni

Laugardagurinn 11. febrúar
Opið hús frá kl. 11.00 til 15.00
Umsjón: Tóta og Ester

Fimmtudagurinn 16. febrúar
Út að borða kl. 18.00
Umsjón: Friddi

Fimmtudagurinn 23. febrúar
Opið hús kl. 16.00
Umsjón: Margrét

Laugardagurinn 25. febrúar
Opið hús frá kl 16.00 til 15.00
Umsjón: Benni

.
Hið árlega þorrablót klúbbsins verður haldið fimmtudaginn 2. febrúar. Hefðbundinn þorramatur verður á boðstólum ásamt fjöldasöng með undirleik Kela og kiðlinganna, ef þorraguðinn lofar, og

Afmæliskaffi á morgun kl. 14.00. Allir velkomnir en ókeypis fyrir alla félaga sem eiga afmæli í janúar. Alltaf sama lága verðið fyrir hina.

Ítalskt opið pizzuhús í Geysi á fimmtudaginn kl. 16.00 til 20.00. Flatt verður út ítalsk pizzudeig og ýmis konar ítalskt tildur haft við á opnu húsi.

Laugardaginn 21. janúar verður opið hús í Geysi frá kl. 11.00-15.00. Við ætlum að elda saman indverska kjúklingasúpu og horfa á amerísku gamanmyndina Rat Race

Fimmtudaginn 19. febrúar verður farið á kaffihús. Mæting í Klúbbnum Geysi kl. 16.00 og þaðan verður gengið niður í bæ. Þá ákveðum við hvar við





Klúbburinn Geysir
Skipholti 29/105 Reykjavik Sími: 5515166 Fax: 5515136 Veffang www.kgeysir.is