Fountain House

Saga klúbbhúsahreyfingarinnar


Upphaf klúbbhúsanna
Klúbbhúsahreyfingin hófst í New York árið 1948 er lítill hópur sjúklinga sem útskrifaðir voru frá stórum ríkisspítala, ákvað að hittast reglulega og reyna að vinna bug á einangrun og einmanaleika sem hrjáir marga geðsjúklinga. Þegar fjöldi þeirra jókst varð sífellt erfiðara að hittast á kaffihúsum eða bókasöfnum, svo þeir tryggðu sér fjármagn fyrir húsnæði og einum starfsmanni árið 1948. Í bakgarðinum var gosbrunnur og því var klúbburinn skírður Fountain House. Velgengni klúbbsins vakti mikla athygli og fór hann að verða fyrirmynd annarra samtaka innan Bandaríkjanna.

ICCD - Alþjóðasamtök klúbbhúsa
Árið 1994 var alþjóðleg miðstöð fyrir klúbbhúsin stofnuð. Markmiðið var að samræma klúbbhúsin, efla vöxt þeirra og gæði starfseminnar. Í dag eru yfir 400 klúbbar starfandi í 27 löndum, t.d. 30 í Englandi, 7 í Skotlandi, margir á Norðurlöndum og í Finnlandi er mikil uppbygging í gangi og búast þeir við að opna um 40 klúbbhús á næstu 5 árum.

Heimasíða ICCD

Klúbburinn Geysir
Undirbúningur að stofnun Geysis hófst árið 1997 og var klúbburinn formlega stofnaður haustið 1999. Starfseminn hófst í tveimur litlum herbergjum að Hátúni 10 og fljótlega myndaðist kjarni 10-15 félaga. Í janúar árið 2000 bauðst klúbbnum 200 fermetra húsnæði að Ægisgötu 7 og var það leigt af Reykjavíkurborg. Í október árið 2001 stóð Kiwanishreyfingin fyrir landssöfnun í þágu geðsjúkra og fékk Geysir 10 milljónir í sinn hlut, það gerði klúbbnum kleift að kaupa húsnæði undir starfsemina að Skipholti 29 í félagi við Hússjóð Öryrkjabandalags Íslands. Í dag eru skráðir 320 félagar og 40- 45 eru virkir í daglegri starfsemi hússins.

Klúbburinn Strókur 
Árið 2005 kom saman lítill hópur einstaklinga á Selfossi sem átt hafði við geðsjúkdóma að stríða. Ástæðan var að engin úrræði voru til staðar í Árnes- og Rangárþingi. Strax var tekið mið af starfsemi Klúbbsins Geysis og milli þessara klúbba hefur verið mjög gott samstarf.

Klúbburinn Strókur
Skólavellir 1
800 Selfoss
Sími: 482 1757
Netfang: klubburstrokur@simnet.is








KlúbburinnGeysir
Skipholti 29/105 Reykjavik Sími: 5515166 Fax: 5515136 Veffang www.kgeysir.is