

15. alþjóðaráðstefna Klúbbhúsahreyfingarinnar á Florida 24. - 29. október 2009
Framkvæmdastjóri og einn félagi sóttu ráðstefnuna fyrir hönd Geysis.
10. Evrópuráðstefna Fountain House í Glasgow 8. - 10. desember 2008.
Félagi og starfsmaður fóru á 10. Evrópuráðstefnu Fountain House sem haldin var í Glasgow í Skotlandi 8.-10. desember.
14. alþjóðaráðstefna Klúbbhúsahreyfingarinnar 13. - 18. október 2007
Í október fór framkvæmdastjóri og félagi í Geysi á alþjóðlega ráðstefnu í Milwaukee í Bandaríkjunum. Þar voru samankomnir fulltrúar frá klúbbhúsum víðsvegar að úr heiminum.
9. Evrópuráðstefna Fountain House í Munchen 24. - 24. nóvember 2006
Níunda Evrópuráðstefna ICCD var haldin í Munchen 21. til 24. nóvember. Framkvæmdastjóri, starfsmaður og tveir félagar sóttu ráðstefnuna fyrir hönd Geysis
13. alþjóðaráðstefna Klúbbhúsahreyfingarinnar 18. - 22. júní 2005 í Helsinki
13. alþjóðaráðstefna Klúbbhúsahreyfingarinnar ICCD hófst laugardaginn 18. júní. Ákveðið var að senda tvo fulltrúa frá Geysi, Kristinn S. Einarsson verðandi framkvæmdastjóra Geysis og Óðinn Einisson félaga. Mikill undirbúningur hefur verið vegna þátttöku Geysis í ráðstefnunni og gott starf unnið í klúbbnum. Óskum ráðstefnuförum góðrar ferðar og frjórrar þátttöku
Evrópuráðstefna Fountain House í Malmö, Svíþjóð 15. - 18. september 2004.
Klúbburinn Geysir hefur keypt 4 pláss á Evrópuráðstefnuna. Áætlað er að 2 félagar, stjórnarmaður og starfsmaður fari sem fulltrúar klúbbsins. Ráðstefnan stendur frá klukkan 09.00 til 17.00 auk félagslegrar dagskrár.
Þeir sem gefa kost á sér þurfa að uppfylla eftirfarandi:
Tala og skilja ensku. Sitja fyrirlestra og taka niður efni þeirra.Undirbúa kynningu og kynningarefni sem farið verður með á ráðstefnuna. Kynna Geysi og starfsemina fyrir öðrum ráðstefnugestum. Miðla reynslunni inn í klúbbinn og jafnframt að kynna efni ráðstefnunnar félögum, starfsfólki, stjórn og öðrum áhugasömum aðilum. Einnig að skrifa grein/skýrslu í Gosið.
Námsferð í Fountain húsið í Stokkhólmi 2. - 9. október 2004.
Klúbburinn Geysir sótti um styrk til Nordplus og fékk úthlutað 30. þúsund í dönskum krónum. Ákveðið hefur verið að 6 félagar og 2 starfsmenn fari og dvelji í viku. Ætlast er til að félagar sem fara vinni verkefni í samræmi við umsókn okkar til Nordplus og skili því inn að ferð lokinni. Jafnframt er ætlast til að hópurinn skili skriflegri niðurstöðu sem send verður til Nordplus.
Hver þátttakandi vinnur í tveimur mismunandi deildum í húsinu á tímabilinu og er ætlast til virkrar þátttöku. Stefnt er að því að gista á farfuglarheimili nálægt Fountainhúsinu.
Alþjóðaráðstefna Fountain House í Minneapolis, Minnesota U.S.A. 2003.
Þann 11.-16. október var haldin alþjóðleg ráðstefna Fountain House og voru sendir fulltrúar frá Klúbbnum Geysi þangað.
Þjálfunarhús
Í haust fóru starfsmaður, félagi og stjórnarmaður í þriggja vikna þjálfun til GENESIS CLUB. INC. Worchester Massachusetts. Markmiðið var að efla og styrkja starfsemi Klúbbsins Geysis.
Úttekt frá ICCD
Einnig munum við sækja um mat/úttekt á starfsemi klúbbsins til ICCD. Úttektin mun fara fram í þriggja daga heimsókn. Hver úttekt er gerð af einum starfsmanni og einum félaga frá ICCD deildinni um framvindu og þróun klúbbhúsa. Síðan fáum við skýrslu um þá þætti sem við getum bætt okkur í. Vottorð frá ICCD er aðeins gefið út til eins eða þriggja ára, ákvörðunin er tekin í samræmi við hversu vel klúbbnum gengur að uppfylla alþjóðlegar viðmiðunarreglur Fountain House.

