

Alþjóðlegar reglur ICCD samkvæmt hugmyndafræði Fountain House.
Uppfærðar 1. október 2008.
Alþjóðlegu viðmiðunarreglurnar eru samþykktar samhljóða um allan heim af klúbbhúsahreyfingunni. Í þeim eru endurhæfingarmarkmið hennar skilgreind. Grundvallarmarkmið viðmiðunarreglnanna er að vera miðpunktur að árangursríku starfi hreyfingarinnar: Að hjálpa fólki sem á við geðræn veikindi að stríða til að þurfa ekki að dvelja á stofnunum á meðan það er að ná markmiðum sem varða félagslíf, fjárhag og atvinnu.Viðmiðunarreglurnar þjóna einnig hlutverki „stjórnarskrár“ félaga og sem siðareglur starfsfólks og stjórnarmanna. Í viðmiðunarreglunum er þess krafist að klúbbhúsið sé staður virðingar og tækifæra.
Viðmiðunarreglurnar eru sá grunnur sem ICCD byggir úttektir sínar á þegar gæði klúbbhúsa eru metin.
Annað hvert ár endurskoðar klúbbhúsasamfélagið viðmiðunarreglurnar og breytir þeim ef þurfa þykir.Endurskoðunin er samræmd af endurskoðunarnefnd ICCD, skipuð félögum og starfsfólki viðurkenndra klúbbhúsa um allan heim.