Atvinnutækifæri.

Frá því Klúbburinn Geysir hóf starfsemi hefur hann verið vettvangur starfsleitar fyrir félaga sína. Þau úrræði sem klúbburinn hefur boðið félögum sínum hefur verið atvinna með stuðningi, sjálfstæð ráðning og ráðning til reynslu - RTR.

Ráðning til reynslu (RTR):

Í Geysi er atvinnu og menntadeild, ATOM, sem starfar jafnhliða skrifstofudeildinni, þar sem félagar og starfsmenn vinna að því að ná tengslum við vinnuveitendur. Ráðning til reynslu veitir félögum tækifæri til þátttöku á almennum vinnumarkaði.

RTR eru hlutastörf og tímatakmörkuð, að jafnaði 15-20 tímar á viku, í 6, 9 eða 12 mánuði. Þá tekur annar félagi við starfinu. Klúbburinn sér um að tala við atvinnurekendur, kynna fyrir þeim hvað felst í ráðningu til reynslu og útvega störf fyrir félaga.

Starfsmaður klúbbsins kynnir sér starfið og þjálfar viðkomandi félaga, vinnuveitanda að kostnaðarlausu. Að þjálfun lokinni fer félaginn á launaskrá hjá vinnuveitandanum.

Komi sú staða upp að félagi geti ekki mætt í vinnu sér klúbburinn um að útvega starfskraft í hans stað, hvort sem það er annar félagi eða starfsmaður klúbbsins. Vinnuveitandanum er þannig tryggt 100% vinnuframlag.

Starfsmaður klúbbsins veitir bæði félaganum og vinnuveitandanum stuðning á meðan á ráðningu stendur og fylgist með gangi mála. Jákvætt er ef félagi sækir klúbbinn samhliða RTR.

RTR ráðningarfyrirkomulagið er nýtt hér á landi en hefur verið notað í 27 löndum víðs vegar um heim með mjög góðum árangri, bæði fyrir félaga klúbbhúsanna og atvinnurekendur.

Frá upphafi hafa um 50 félagar starfað í Ráðningu til Reynslu. Yfir 100 félagar stunda nú vinnu á almennum vinnumarkaði.

Störf í Ráðningu til reynslu á vegum Geysis:

Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða: Skjalavarsla, undirbúningur funda og umsjón með kaffistofu. Vinnutími: 10:00-14:00.

Þjónustumiðstöð Háaleitis og Laugardals: Skjalavarsla, undirbúningur funda, umsjón með kaffistofu og leikfangasafn. Vinnutími: 10:00-14:00.

Félags- og þjónustumiðstöð aldraðra við Vitatorg: Leggja á borð og undirbúa hádegisverð, færa einstaklingum mat sem þurfa frekari aðstoð, taka af borðum og þrífa þau ásamt almennum þrifum í matsal og á aðstöðu starfsmanna, undirbúa matsal fyrir miðdegiskaffi, vökva blóm og annað tilfallandi. Vinnutími: 11:00-15:00.

Bifreiðastöð Íslands BSÍ: (Tvö störf). Að halda umhverfi BSÍ hreinu snyrtilegu og losa ruslastampa. Einnig létt gólfþrif í móttökusal.

Atvinna með stuðningi og sjálfstæð ráðning:

Við sjálfstæða ráðningu leitar félagi í klúbbnum eftir vinnu á eigin vegum, að eigin frumkvæði og ábyrgð. Viðkomandi fær allan þann stuðning, sem klúbburinn getur veitt honum og hann leitar eftir. Slíkur stuðningur getur t.d. verið meðmæli og aðstoð við að fylla út umsóknir auk aðstoðar við að útbúa starfsferilsskrár og fara með félögum í atvinnuviðtöl. Sá sem byrjar í starfi er áfram félagi í klúbbnum og hefur alla möguleika á að njóta þeirra réttinda og skyldna sem vera hans í klúbbnum leggur honum á herðar.

Klúbburinn Geysir er hefur átt gott samstarf við Svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra og atvinnu með stuðningi. Lögð er áhersla á að finna starf á almennum vinnumarkaði út frá áhuga og styrkleikum einstaklingsins.

 

 

 

Árangur

Í júlí 2010 eru 5 félagar í RTR störfum. Í lok árs 2009 voru 116 félagar í námi eða vinnu.

Ummæli

Reynsla vinnuveitanda
"Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða hefur verið um árabil með starfsmann sem hefur komið í gegnum klúbbinn Geysi. Starfsmaðurinn hefur að jafnaði starfað í 9 mánuði og sinnt störfum í eldhúsi og skrifstofustörfum. Reynsla þjónustumiðstöðvarinnar hefur verið afar jákvæð og samstarfið við Geysi verið farsælt. Einnig hefur starfsfólk lýst mikilli ánægju með þetta fyrirkomulag og starfsmaðurinn verið ómissandi partur af hópnum."

Líney Einarsdóttir, þjónustustjóri
Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða

Ummæli félaga
"Með því að fara í RTR þá öðlaðist ég trú á því að ég gæti aftur farið út á almennan vinnumarkað."
Björk Agnarsdóttir

"Ráðning til Reynslu hefur gefið mér nýja sýn á lifið. Að komast á almennan vinnumarkað er alveg yndislegt."
Ásta Andrésdóttir

"Ég er ánægður með starfið og hef gaman að því að vera þar sem er hreyfing á fólki."
Helgi Ásmundsson

Vinnan er göfgandi og færir manni sjálfsvirðingu!
Sá sem er iðjulaus situr sex djöfla og hossar þeim sjöunda. Þannig hljómar gamalt íslenskt spakmæli úr lúterskum sið. Fræði hins þýska Marteins Lúters gera ráð fyrir því í einhverju mæli að menn séu hólpnir þá aðeins að þeir séu iðju- og vinnusamir í hvívetna. Ekki vil ég gera nokkrum upp þær sakir að aðhyllast kristið vinnusiðgæði. Best er að hver og einn sýsli við það sem honum eða henni stendur næst hjarta. Vinnan er vissulega til þess fallinn að efla mennsku hvers og eins og hefur nafni Marteins sem er einn af félögum okkar í Klúbbnum Geysi tekið undir þau orð. Sá síðarnefndi hefur lagt þunga áherslu á gildi atvinnu fyrir einstaklingin(n) sem slíkan. Það er í alla staði gott og jákvætt að vera innanbúðarmaður á einhverjum tilteknum vinnustað. Það er það sem RTR gefur manni kost á að vera.  Það er félagsskapur sem gefur manni færi á að vingast við samferðamenn sína og deila sorgum og gleði. Það er jafnvel svo að hagfræðingar  og aðrir telja betra að hafa einhverja vinnu fremur en enga vinnu. Hlutastörf og störf í styttri eða lengri tíma eru vel til þess fallin að gera menn að ábyrgum þjóðfélagsþegnum. Menn öðlast svo að segja hlutahafarétt í því að nærsamfélagið njóti vafans og vinna þannig að eigin velferð.

Kjartan Emil Sigurðsson








KlúbburinnGeysir
Skipholti 29/105 Reykjavik Sími: 5515166 Fax: 5515136 Veffang www.kgeysir.is