Um Geysi

Hvað er Klúbburinn Geysir ?
Klúbburinn Geysir er fyrir fólk sem á eða átt hefur við geðræn veikindi að stríða.  Klúbburinn starfar eftir hugmyndafræði Fountain House, sem byggir á markvissri uppbyggingu á hæfileikum og getu einstaklingsins.

Er Klúbburinn Geysir eitthvað fyrir þig?
Þegar þú gengur í klúbbinn gleðjumst við yfir þátttöku þinni. Félagsleg einangrun þarf ekki lengur að valda vanlíðan, því í klúbbnum átt þú félaga sem láta sér annt um velferð þína. Þú hefur allt að vinna. Taktu fyrsta skrefið í átt til betra lífs. Í Klúbbnum Geysi leggur hver og einn sitt af mörkum eftir getu og vilja. Allir hafa eitthvað að gefa og hver félagi er mikilvægur í starfsemi okkar. Hugsanlega getur tilvera þín og líðan breyst til betri vegar. Þú skiptir máli!  
 
Kynning fyrir nýja félaga
Kynningar eru á þriðjudögum og fimmtudögum klukkan 10.00-12.00. Óskir um kynningu er svarað í síma 551-5166 og fundinn er tími sem hentar. Þá er skráð niður nafn og sími viðkomandi. Kynningar eru alltaf í höndum starfsmanns og félaga. Í kynningu er farið um húsið, vinnudeildir skoðaðar, farið yfir starfsemi þeirra og uppbyggingu vinnumiðaðs dags. Að lokinni ferð um húsið er sest niður með viðkomandi, farið yfir hugmyndafræði Fountain House og fyrirspurnum svarað.

Klúbburinn Geysir
Skipholti 29
105 Reykjavik
Sími: 5515166
Fax: 5515136

.

     Veffang: www.kgeysir.is
     Netfang:
kgeysir@kgeysir.is 


     








KlúbburinnGeysir
Skipholti 29/105 Reykjavik Sími: 5515166 Fax: 5515136 Veffang www.kgeysir.is