

Hátt í 70 manns mættu á vel heppnað Þorrablót Klúbbsins Geysis sem var haldið síðasliðinn fimmtudag. Félagar gæddu sér á ljúffengu súrmeti og nýmeti af bestu lyst. Skemmtiatriði voru þjóðleg, flutt var minni karla og kvenna og sungið var hressilega við undirspil Sigurgeirs Bjarts Þórissonar ásamt Viðari Frey Guðmundssyni sem leiddi fjöldasöng. Kveðin var stuttur annáll og margt annað skemmtilegt gert. Við þökkum fyrir frábærar undirtektir jafnt við undirbúninginn og blótið sjálft.


Fimmtudagur 2. september
Út að borða á Krua Thai Tryggvagötu 14 kl. 18.00
Fimmtudagur 9. september
Grasagarðurinn, Kaffi Flóra kl. 16.00
Laugardagur 11. september
Farið í Reykjarétt á Skeiðum.
Lagt af stað kl.08.00 frá Geysi.
Munið að skrá ykkur tímanlega
Félagar athugið að ekki verður opið hús
í Geysi þennan dag!
Fimmtudagur 16. september
Bíóferð kl. 18.00
Fimmtudagur 23. september
Ganga í Elliðaárdalnum kl. 16.00
Fimmtudagur 30. september
Opið hús í Geysi 16.00 - 20.00
Opið hús á laugardögum í september.
Frá kl. 11.00 - 15.00.