
Fimmtudaginn 25. febrúar tók fólk í deildum á þriðju hæð hússins sig til og breyttu til í rýminu, þrifu og endurskipulögðu, undir merkjum lífrænnar endurskipulagningar. Ásetningur um breytingar hafði áður verið kynntur á húsfundi. Svo vel tókst til að; vinnurýmið stækkaði verulega, rýmið allt er opnara og hávaði minnkaði talsvert. Vegna frábærs árangurs – stærra vinnurými og betra hljóðumhverfi – hyggja deildirnar á frekari landvinninga í fermetrum. Bætt lýsing á göngum, flutningur á töflum og fleira er í farvatninu en einnig verður unnið áfram í skapandi hugmyndavinnu til að breyta og bæta enn frekar vinnuaðstöðu allra deilda á hæðinni.
Hamingjusama byltingarráðið/breytingateymið


Fimmtudagur 2. september
Út að borða á Krua Thai Tryggvagötu 14 kl. 18.00
Fimmtudagur 9. september
Grasagarðurinn, Kaffi Flóra kl. 16.00
Laugardagur 11. september
Farið í Reykjarétt á Skeiðum.
Lagt af stað kl.08.00 frá Geysi.
Munið að skrá ykkur tímanlega
Félagar athugið að ekki verður opið hús
í Geysi þennan dag!
Fimmtudagur 16. september
Bíóferð kl. 18.00
Fimmtudagur 23. september
Ganga í Elliðaárdalnum kl. 16.00
Fimmtudagur 30. september
Opið hús í Geysi 16.00 - 20.00
Opið hús á laugardögum í september.
Frá kl. 11.00 - 15.00.